Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fim 30. janúar 2025 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Zalewski hafnaði Marseille - Vill fara til Inter
Pólski bakvörðurinn Nicola Zalewski vill ólmur ganga í raðir Inter frá Roma, en hann hefur þegar hafnað tilboði franska félagsins Marseille.

Marseille náði samkomulagi við Roma um kaup á Zalewski á dögunum en leikmaðurinn sagði einfaldlega nei.

Zalewski, sem er 23 ára gamall, er staðráðinn í því að vera áfram á Ítalíu en Inter er efst í huga hjá honum.

Félögin vinna nú að því að ná samkomulagi en líklegasta útfærslan er að hann framlengi samning sinn við Roma og verði síðan lánaður til Inter.

Ítalíumeistararnir eiga síðan möguleika á að gera skiptin varanleg fyrir 6-7 milljónir evra í sumar.

Á sama tíma er Inter að senda kanadíska leikmanninn Tajon Buchanan á láni til Villarreal á Spáni en þau skipti verða væntanlega tilkynnt á næstu dögum.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner