Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Al-Hilal reynir við Theo Hernández
Mynd: EPA
Sádi-arabíska stórveldið Al-Hilal er í stórsókn fyrir HM félagsliða. Stjórnendur vilja styrkja liðið til muna svo það nái sem bestum árangri í sumar.

Stjörnum prýtt lið Al-Hilal er í riðli með Real Madrid, RB Salzburg og Pachuca á HM í sumar. Rúben Neves, Aleksandr Mitrovic, Malcom, Sergej Milinkovic-Savic, Joao Cancelo, Renan Lodi, Kalidou Koulibaly og Bono eru meðal leikmanna Al-Hilal í dag.

Al-Hilal er án þjálfara eftir að Jorge Jesus var látinn fara í byrjun maí. Stórveldið hefur verið sterklega orðað við Simone Inzaghi, aðalþjálfara Inter, auk þess að vera orðað við stórstjörnurnar Bruno Fernandes og Cristiano Ronaldo síðustu daga.

Núna greina fjölmiðlar á Ítalíu frá því að Al-Hilal sé á höttunum eftir Theo Hernández, vinstri bakverði AC Milan og franska landsliðsins. Hernández er 27 ára gamall og aðeins með eitt ár eftir af samningi hjá Milan.

Milan er í viðræðum við Al-Hilal um sölu á Hernández, en leikmaðurinn sjálfur á eftir að gefa grænt ljós á félagaskiptin.

Fabrizio Romano greinir frá því og segir að Hernández sé meðal allra efstu manna á óskalistanum hjá Al-Hilal.
Athugasemdir