Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 14:49
Ívan Guðjón Baldursson
Sky segir Inzaghi taka við Al-Hilal eftir úrslitaleikinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sky Sports greinir frá því að Simone Inzaghi þjálfari Inter sé að taka við Al-Hilal eftir úrslitaleik Meistaradeildarinnar annað kvöld.

Inzaghi á eitt ár eftir af samningi sínum við Inter en hefur ekki tekist að gera nýjan samning við félagið. Hann hefur náð mögnuðum árangri með liðið en hefur fengið talsvert betra samningstilboð frá sádi-arabíska stórveldinu.

Inter spilar við franska stórveldið PSG í úrslitaleiknum og er þetta í annað sinn á þremur árum sem Inzaghi stýrir liðinu alla leið í úrslitaleikinn. Síðast tapaði Inter afar naumlega gegn Manchester City.

Al-Hilal er í stórsókn þessa dagana þar sem liðið undirbýr sig fyrir HM félagsliða. Stjórnendur eru að reyna að semja við Cristiano Ronaldo auk þess sem þeir vilja ráða Inzaghi sem þjálfara og kaupa Bruno Fernandes fyrirliða Manchester United.

Inzaghi neitaði að tjá sig um framtíðina á fréttamannafundi fyrir úrslitaleikinn og sagðist ekki geta útilokað félagaskipti til Sádi-Arabíu.

Inter vann ítölsku deildina undir stjórn Inzaghi á síðustu leiktíð en endaði í öðru sæti á nýliðinu tímabili, einu stigi á eftir Napoli.
Athugasemdir