Sky Sports greinir frá því að Napoli leiðir kapphlaupið um Jonathan David, framherja Lille og kanadíska landsliðsins sem verður samningslaus í sumar.
Inter og Juventus eru einnig áhugasöm ásamt Manchester United, West Ham og fleiri sterkum félögum.
David er 25 ára gamall og kom að 37 mörkum í 49 leikjum á nýliðnu tímabili með Lille.
Napoli er að bjóða honum betri samning heldur en keppinautarnir þar sem Aurelio De Laurentiis ætlar að styrkja Ítalíumeistaraliðið eftir fremsta megni í sumar.
Hann er búinn að bjóða þjálfaranum Antonio Conte endurbættan samning og er belgíska stórstjarnan Kevin De Bruyne efst á óskalistanum við hlið Jonathan David. De Bruyne rennur út á samningi hjá Manchester City í sumar.
Conte er þegar samningsbundinn Napoli til 2027 en De Laurentiis er gríðarlega ánægður með hans starf og vill ólmur halda honum hjá félaginu.
Búist er við að Napoli selji Victor Osimhen, sem hefur verið að gera góða hluti á láni hjá Galatasaray, í sumar.
Conte tókst að stýra Napoli til Ítalíumeistaratitilsins þrátt fyrir að hafa misst Khvicha Kvaratskhelia og Osimhen frá félaginu.
Athugasemdir