Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 13:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Liverpool leggur fram annað risatilboð í Wirtz
Mynd: EPA
Liverpool hefur mikinn áhuga á því að fá Florian Wirtz í sínar raðir en Manchester City, Bayern Munchen og Real Madrid hafa einnig sýnt þýska snillingnum áhuga.

David Ornstein, blaðamaður hjá The Athletic greinir frá því í dag að Liverpool hafi sent Leverkusen tilboð.

Það ku hljóða upp á 130 milljónir evra þegar allt er tekið saman, eða um 110 milljónir punda. Ornstein segir þetta vera annað tilboðið sem Liverpool leggur fram í Þjóðverjann.

Wirtz er 22 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem hefur átt tvö mjög góð tímabil undir stjórn Xabi Alonso en nú er Alonso mættur til Real Madrid. Wirtz var ungur kominn í liðið hjá Leverkusen en missti út eitt tímabil vegna alvarlegra meiðsla. Það hefur verið efitrtektarvert að sjá hversu öflugur hann hefur verið eftir meiðslin.


Athugasemdir