Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 11:46
Elvar Geir Magnússon
Trent keyptur fyrr og verður leikmaður Real Madrid á sunnudag
Trent Alexander-Arnold kvaddi Liverpool eftir að hafa lyft Englandsmeistarabikarnum.
Trent Alexander-Arnold kvaddi Liverpool eftir að hafa lyft Englandsmeistarabikarnum.
Mynd: EPA
Trent Alexander-Arnold mun ganga til liðs við Real Madrid á sunnudaginn, 1. júní, eftir að Liverpool samþykkti að losa hann út úr samningi sínum gegn greiðslu.

Sagt er að kaupverðið, fyrir að fá leikmanninn mánuði áður en samningur hans átti að renna út, sé 10 milljónir evra (um 8,4 milljónir punda) en spænska félagið segir upphæðina lægri.

Samningurinn tryggir að enski landsliðsmaðurinn geti spilað með Real Madrid í HM félagsliða sem fer fram í Bandaríkjunum og hefst 14. júní.

Alexander-Arnold, sem er 26 ára, hefur verið hjá Liverpool síðan hann var sex ára gamall og hefur unnið fjölda titla með félaginu, þar á meðal tvo Englandsmeistaratitla, Meistaradeildina og FA-bikarinn. Hann hefur skorað 23 mörk og gefið 86 stoðsendingar í 352 leikjum fyrir félagið.

Hann hafði áður staðfest að hann myndi yfirgefa Liverpool í sumar til að takast á við „nýja áskorun“ og þróast „sem persóna og leikmaður“. Xabi Alonso er tekinn við sem stjóri hjá Real Madrid eftir tímabil þar sem félagið vann ekki titil.
Athugasemdir
banner
banner
banner