Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 14:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Túfa: Ef hann heldur áfram að hlusta þá er framtíðin björt
Lúkas Logi hefur byrjað síðustu níu leiki Vals.
Lúkas Logi hefur byrjað síðustu níu leiki Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frábær gegn ÍA fyrr í þessum mánuði og aftur mjög góður í gær.
Frábær gegn ÍA fyrr í þessum mánuði og aftur mjög góður í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lúkas Logi Heimisson hefur verið í stóru hluterki hjá Val á tímabilinu. Hann kom inn á sem varamaður í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins en hefur núna byrjað níu leiki í röð í öllum keppnum. Hann átti mjög góðan leik gegn Aftureldingu, fiskaði vítaspyrnu og lagði svo upp mark fyrir Aron Jóhannsson.

Lúkas var keyptur frá Fjölni fyrir tímabilið 2023 eftir eftirminnilegt verkfall. Hann hefur síðustu vikur sýnt hversu öflugur leikmaður hann getur verið. Hann er 22 ára sóknarsinnaður miðjumaður.

Fótbolti.net ræddi við þjálfarann hans eftir leikinn í gær.

Lestu um leikinn: Afturelding 0 -  2 Valur

„Lúkas er einn af yngri leikmönnum sem er hingað til kannski ekki búinn að ná að stimpla sig almennilega inn í Val. Hann fékk aðeins smjörþefinn síðasta haust eftir að ég kom inn í þetta, hann var óheppinn að þurfa að fara í aðgerð eftir tímabilið svo hann missti af nánast öllum vetrinum, en hann er að koma betur og betur inn í þetta. Það er eins með Lúkas og aðra unga leikmenn, ef hann heldur áfram leggja harta að sér og hlusta á þjálfarann sinn og eldri leikmenn, þá er framtíðin björt," sagði Túfa.

Rætt var um Lúkas Loga og sigur Vals í Innkastinu þar sem níunda umferðin var gerð upp. Hægt er að nálgast þáttinn í spilaranum hér neðst og á öllum hlaðvarpsveitum.
Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar
Athugasemdir
banner
banner