Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fös 31. janúar 2025 09:34
Elvar Geir Magnússon
Æskuljómi yfir Tottenham og met slegið - „Spilum bara á krökkunum“
Tottenham hafði farið í gegnum sjö úrvalsdeildarleiki án sigurs þegar liðið lagði Elfsborg 3-0 í Evrópudeildinni í gær. Sænska liðið gerði því enska erfitt fyrir og fyrsta markið kom ekki fyrr en á 70. mínútu.

Hinn tvítugi Dane Scarlett braut ísinn áður en hinn nítján ára Damola Ajayi, nýkominn inn sem varamaður í sínum fyrsta leik fyrir Tottenham, tvöfaldaði forystuna.

Stærsta stundin var þó þegar Mikey Moore skoraði þriðja markið og varð um leið yngsti Englendingurinn til að skora í Evrópukeppni félagsliða. 17 ára og 172 daga gamall. Hann sló met Jimmy Greaves, sem er Tottenham goðsögn en skoraði ungur fyrir Chelsea í Evrópu (17 ára, 245 daga).

Moore hefur verið hjá Tottenham síðan hann var sjö ára gamall en hann er einn efnilegasti leikmaður Englendinga.

„Stuðningsmaður sagði við mig þegar Moore skoraði: Spilum bara á krökkunum! Það þarf ekki að kaupa neinn," segir Peter Crouch, fyrrum sóknarmaður Tottenham, eftir leikinn.

„Eins og ég sagði þá var þetta búið til í Tottenham í kvöld. Þetta er frábært fyrir félagið og ég er nokkuð viss um að það eru þjálfarar í akademíunni og leikmenn sem munu lítið sofa í nótt vegna spennu," sagði Ange Postecoglou, stjóri Tottenham.

Tottenham endaði í fjórða sæti Evrópudeildarinnar og flýgur beint í 16-liða úrslitin.
Stöðutaflan Evrópa Evrópudeildin
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Lazio 8 6 1 1 17 5 +12 19
2 Athletic 8 6 1 1 15 7 +8 19
3 Man Utd 8 5 3 0 16 9 +7 18
4 Tottenham 8 5 2 1 17 9 +8 17
5 Frankfurt 8 5 1 2 14 10 +4 16
6 Lyon 8 4 3 1 16 8 +8 15
7 Olympiakos 8 4 3 1 9 3 +6 15
8 Rangers 8 4 2 2 16 10 +6 14
9 Bodö/Glimt 8 4 2 2 14 11 +3 14
10 Anderlecht 8 4 2 2 14 12 +2 14
11 Steaua 8 4 2 2 10 9 +1 14
12 Ajax 8 4 1 3 16 8 +8 13
13 Real Sociedad 8 4 1 3 13 9 +4 13
14 Galatasaray 8 3 4 1 19 16 +3 13
15 Roma 8 3 3 2 10 6 +4 12
16 Plzen 8 3 3 2 13 12 +1 12
17 Ferencvaros 8 4 0 4 15 15 0 12
18 Porto 8 3 2 3 13 11 +2 11
19 AZ 8 3 2 3 13 13 0 11
20 Midtjylland 8 3 2 3 9 9 0 11
21 St. Gilloise 8 3 2 3 8 8 0 11
22 PAOK 8 3 1 4 12 10 +2 10
23 Twente 8 2 4 2 8 9 -1 10
24 Fenerbahce 8 2 4 2 9 11 -2 10
25 Braga 8 3 1 4 9 12 -3 10
26 Elfsborg 8 3 1 4 9 14 -5 10
27 Hoffenheim 8 2 3 3 11 14 -3 9
28 Besiktas 8 3 0 5 10 15 -5 9
29 Maccabi Tel Aviv 8 2 0 6 8 17 -9 6
30 Slavia Prag 8 1 2 5 7 11 -4 5
31 Malmö 8 1 2 5 10 17 -7 5
32 Rigas FS 8 1 2 5 6 13 -7 5
33 Ludogorets 8 0 4 4 4 11 -7 4
34 Dynamo K. 8 1 1 6 5 18 -13 4
35 Nice 8 0 3 5 7 16 -9 3
36 Qarabag 8 1 0 7 6 20 -14 3
Slapp
Athugasemdir
banner
banner