Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fös 31. janúar 2025 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England um helgina - Risaslagur þegar City mætir Arsenal
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildin verður í fullu fjöri um helgina þegar 24. umferð deildartímabilsins verður spiluð.

Fjörið hefst í hádeginu á laugardag þegar spútnik lið Nottingham Forest tekur á móti Brighton í spennandi slag, áður en topplið Liverpool heimsækir Bournemouth á mjög erfiðum útivelli.

Newcastle á þá heimaleik við Fulham á sama tíma á meðan Everton mætir nýliðum Leicester CIty og Ipswich Town spilar við Southampton í nýliðaslag.

Wolves og Aston Villa eigast við í lokaleik laugardagsins.

Sunnudagurinn fer af stað með skemmtilegum viðureignum þegar Brentford fær Tottenham í heimsókn og Manchester United tekur á móti Crystal Palace, en stórleikur helgarinnar fylgir þar á eftir.

Englandsmeistarar Manchester City taka þar á móti toppbaráttuliði Arsenal í hörkuslag sem margir bjuggust við að yrði alvöru titilslagur á þessum tímapunkti tímabilsins, en svo er ekki. Bæði lið þurfa á sigri að halda í toppbaráttunni þar sem Liverpool er að stinga af. Það eru sex stig sem skilja Arsenal og Man City að sem stendur, þar sem Arsenal er í öðru sæti og City í fjórða.

Chelsea tekur að lokum á móti West Ham United í mánudagsleiknum.

Laugardagur
12:30 Nott. Forest - Brighton
15:00 Bournemouth - Liverpool
15:00 Everton - Leicester
15:00 Ipswich Town - Southampton
15:00 Newcastle - Fulham
17:30 Wolves - Aston Villa

Sunnudagur
14:00 Brentford - Tottenham
14:00 Man Utd - Crystal Palace
16:30 Arsenal - Man City

Mánudagur
20:00 Chelsea - West Ham
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 31 15 10 6 56 43 +13 55
4 Aston Villa 31 16 6 9 42 37 +5 54
5 Liverpool 31 14 7 10 50 42 +8 49
6 Chelsea 31 13 9 9 53 38 +15 48
7 Brentford 31 13 7 11 46 42 +4 46
8 Everton 31 13 7 11 37 35 +2 46
9 Fulham 31 13 5 13 43 44 -1 44
10 Brighton 31 11 10 10 41 37 +4 43
11 Sunderland 31 11 10 10 32 36 -4 43
12 Newcastle 31 12 6 13 44 45 -1 42
13 Bournemouth 31 9 15 7 46 48 -2 42
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 31 7 12 12 37 48 -11 33
16 Nott. Forest 31 8 8 15 31 43 -12 32
17 Tottenham 31 7 9 15 40 50 -10 30
18 West Ham 31 7 8 16 36 57 -21 29
19 Burnley 31 4 8 19 33 61 -28 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Slapp
Athugasemdir
banner