Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fös 31. janúar 2025 09:47
Elvar Geir Magnússon
Var ekki lengi atvinnulaus
Mynd: EPA
Paulo Fonseca, Portúgalinn sem var rekinn frá AC Milan í desember, er búinn að finna sér nýja vinnu.

Hann er tekinn við franska liðinu Lyon og hefur skrifað undir samning til sumarsins 2027.

Hann tekur við af Pierre Sage sem var rekinn í vikunni en Lyon er í sjötta sæti frönsku deildarinnar. Liðið var slegið út úr franska bikarnum af liði í E-deildinni.

Paulo Fonseca þekkir franska boltann vel en hann var stjóri Hákonar Arnars Haraldssonar hjá Lille. Þá er hann fyrrum stjóri Roma og Porto.
Slapp
Athugasemdir
banner