Barcelona undirbýr tilboð í Lisandro Martinez - Curtis Jones orðaður við Inter - Camavinga orðaður við Arsenal og Liverpool
   lau 31. janúar 2026 21:34
Brynjar Ingi Erluson
Gísli kominn aftur á völlinn - Frábær byrjun Davíðs í Grikklandi
Gísli Gottskálk er mættur aftur hjá Lech Poznan
Gísli Gottskálk er mættur aftur hjá Lech Poznan
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Davíð Kristján er að gera flotta hluti hjá Larissa
Davíð Kristján er að gera flotta hluti hjá Larissa
Mynd: AEL Larissa Novibet
Gísli Gottskálk Þórðarson sneri aftur á völlinn með Lech Poznan eftir að hafa verið frá í tæpa tvo mánuði.

Víkingurinn meiddist í desember og var óttast að hann yrði frá í langan tíma, en það fór betur en á horfðist og sneri hann aftur á völlinn í dag, rúmum mánuði eftir að hafa meiðst.

Hann kom inn af bekknum í 3-1 tapi gegn Lechia Gdansk í pólsku úrvalsdeildinni en Poznan er í 8. sæti með 26 stig, sjö stigum frá toppnum.

Davíð Kristján Ólafsson byrjar vel með AEL Larissa í grísku úrvalsdeildinni en hann samdi við liðið í bullandi fallbaráttu og hefur liðið unnið þrjá deildarleiki í röð síðan hann gekk í raðir félagsins.

Blikinn hefur byrjað síðustu tvo leiki og var hann á sínum stað í vængbakverðinum er liðið vann Hjört Hermannsson og félaga í Volos, 2-0.

Larissa er komið upp í 10. sæti með 19 stig og eiga möguleika á að komast í Sambandsdeildarumspilið sem hefst í mars. Hjörtur og Volos hafa verið í basli í síðustu leikjum en liðið var að tapa fjórða deildarleiknum í röð en er þrátt fyrir það í 7. sæti með 25 stig.

Aron Einar Gunnarsson kom inn af bekknum í síðari hálfleik í 3-1 tapi Al Gharafa gegn Al Sadd í titilbaráttuslag í stjörnudeildinni í Katar. Al Gharafa er á toppnum með 31 stig, aðeins tveimur stigum á undan Al Sadd.

Eyþór Martin Björgólfsson kom inn á sem varamaður hjá Motherwell í 2-0 sigri á Livingston og þá kom Kjartan Már Kjartanssonn inn á hjá Aberdeen á 66. mínútu í 3-0 tapi gegn Kilmarnock í skosku úrvalsdeildinni.

Aberdeen er í 7. sæti með 29 stig en Motherwell í 4. sæti með 43 stig.
Athugasemdir
banner
banner