Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 20:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Antony brosti á ný - „Fallegasti kafli í lífi mínu"
Mynd: EPA
Lánssamningur Antony hjá Real Betis er lokið og er hann því á leið aftur til Man Utd.

Antony var frábær í búningi Betis eftir erfiiða tíma hjá Man Utd. Hann sendi Real Betis skilaboð í dag.

„Dagurinn í dag er dagurinn sem ég er þakklátur fyrir fyrir einn fallegasta kafla í mínu lífi. Ég skrifa þetta til að láta ykkur vita að þið voruð og verðið sérstök fyrir mér," skrifaði Antony.

„Þegar ég kom hingað vissi ég ekki við hverju ég átti að búast. Ég fann eitthvað seem mér dreymdi ekki um í mínum villtustu draumum. Ég fann eitthvað öðruvísi um leið og ég steig inn í þetta félagið. Það var eins og að koma heim, eins og að finna hluta af manni sem ég hélt að ég hafði týnt. Ég brosti á ný með ykkur. Ég fann krakkann sem elskaði fótbolta. Með ykkur varð fótbolti mér ástkær aftur. Takk Real Betis."


Athugasemdir
banner