
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari A-landsliðs karla, hefur kallað Dag Dan Þórhallsson inn í landsliðshópinn í stað Bjarka Steins Bjarkasonar.
Bjarki Steinn, sem er á mála hjá Venezia á Ítalíu, er meiddur og getur því ekki verið með í þessu verkefni.
Dagur Dan hefur því verið kallaður inn í hans stað, en hann hefur verið gera gott mót með Orlando City í MLS-deildinni í Bandaríkjunum.
Hann á að baki 6 A-landsleiki og kom sá síðasti gegn Wales í nóvember á síðasta ári.
Ísland spilar tvo vináttuleiki í næsta mánuði gegn Skotlandi og Norður-Írlandi.
Athugasemdir