Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 14:00
Brynjar Ingi Erluson
De Bruyne á leið í læknisskoðun hjá Napoli
Mynd: EPA
Belgíski miðjumaðurinn Kevin de Bruyne er á leið í læknisskoðun hjá ítalska félaginu Napoli.

Samkvæmt Sky hefur Napoli þegar náð samkomulagi við De Bruyne um kaup og kjör.

De Bruyne, sem er 33 ára gamall, kemur á frjálsri sölu frá Manchester City eftir að hafa verið besti leikmaður liðsins síðasta áratuginn.

Nú þegar Napoli hefur tekist að sannfæra þjálfarann Antonio Conte um að vera áfram er röðin komin að De Bruyne.

Leikmaðurinn er á leið í læknisskoðun en möguleiki er á að hún verði framkvæmd á morgun eða rétt eftir landsleikjatörnina.

Napoli, sem varð ítalskur meistari í fjórða sinni á nýafstaðinni leiktíð, ætlar sér stóra hluti á markaðnum, en Jonathan David, Federico Chiesa og Alejandro Garnacho hafa einnig verið orðaðir við félagið ásamt fleirum.
Athugasemdir
banner
banner
banner