Það er nóg um að vera í neðri deildum íslenska boltans í dag þar sem fimm leikir fara fram í 2. deild karla á meðan tveir leikir eru á dagskrá í 2. deild kvenna.
Í karlaflokki eiga toppliðin erfiða útileiki. Þróttur Vogum heimsækir KFA á Neskaupstað á meðan Haukar spila útileik við Ægi í Þorlákshöfn. KFA og Ægir eru erfiðir andstæðingar og eiga bæði lið sjö stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar.
Vogamenn eru með fullt hús stiga á meðan Haukar hafa gert eitt jafntefli hingað til og eru því með tíu stig, tveimur stigum eftir Þrótti.
Í kvennaflokki getur ÍH haldið fullu húsi stiga með sigri í Dalvík á meðan ÍR spilar við Fjölni í Reykjavíkurslag.
Þá er mikil spenna í 3. deildinni og eru einnig leikir á dagskrá í 5. deild og utandeildinni.
2. deild karla
14:00 Ægir-Haukar (GeoSalmo völlurinn)
14:00 Víðir-Grótta (Nesfisk-völlurinn)
14:00 KFG-Höttur/Huginn (Samsungvöllurinn)
14:30 KFA-Þróttur V. (SÚN-völlurinn)
16:00 Víkingur Ó.-Kormákur/Hvöt (Ólafsvíkurvöllur)
2. deild kvenna
14:00 Dalvík/Reynir-ÍH (Dalvíkurvöllur)
14:00 ÍR-Fjölnir (AutoCenter-völlurinn)
3. deild karla
14:00 Hvíti riddarinn-Sindri (Malbikstöðin að Varmá)
16:00 KF-ÍH (Ólafsfjarðarvöllur)
16:00 Augnablik-Tindastóll (Fífan)
16:00 KV-Magni (KR-völlur)
5. deild karla - A-riðill
16:00 Léttir-Hörður Í. (ÍR-völlur)
Utandeild
16:00 KB-Neisti D. (Domusnovavöllurinn)
17:00 Afríka-Hamrarnir (OnePlus völlurinn)
Athugasemdir