Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu fer fram í kvöld þar sem Paris Saint-Germain spilar við Inter. Liðin eigast við á Allianz Arena í München.
Það ríkir mikil eftirvænting fyrir þennan stórslag sem markar lok evrópska fótboltatímabilsins á hverju ári.
Inter komst síðast í úrslitaleikinn 2023 en tapaði þar naumlega gegn Manchester City, þremur árum eftir að PSG tapaði naumlega í úrslitum gegn FC Bayern 2020.
Bæði lið mæta því í þennan úrslitaleik hungruð í titil. PSG hefur aldrei unnið Meistaradeildina en Inter vann síðast 2010, undir stjórn José Mourinho.
Það er lítið af meiðslum fyrir úrslitaleikinn þar sem lærisveinar Luis Enrique í liði PSG eru án meiðsla, á meðan lærisveinar Simone Inzaghi eru án varamannanna Valentín Carboni og Joaquín Correa.
PSG fór í gegnum ensku félögin Liverpool, Aston Villa og Arsenal til að komast í úrslitaleikinn á meðan Inter hafði betur gegn Feyenoord, FC Bayern og Barcelona.
Leikur kvöldsins
19:00 PSG - Inter
Athugasemdir