Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 20:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeildin: PSG slátraði Inter - Fyrsti Meistaradeildartitill félagsins
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Paris Saint Germain 5 - 0 Inter
1-0 Achraf Hakimi ('12 )
2-0 Desire Doue ('20 )
3-0 Desire Doue ('63 )
4-0 Khvicha Kvaratskhelia ('73 )
5-0 Senny Mayulu ('87 )

PSG er sigurvegari í Meistaradeild Evrópu árið 2025 eftir stórsigur á Inter.

PSG var með þónokkra yfirburði allan leikinn. Achraf Hakimi kom liðinu yfir snemma leiks eftir sendingu frá Desire Doue sem hafði fengið boltann inn á teignum en Federico Dimarco gerði hann réttstæðann.

Stuttu síðar skoraði síðan Doue en boltinn fór í Dimarco og breytti því um stefnu og tók Yann Sommer í marki Inter úr jafnvægi.

Inter tókst ekkert að ógna Gianluigi Donnarumma í marki PSG sem hélt áfram að sækja.

Hinn 19 ára gamli Desire Doue var ekki hættur því hann bætti öðru marki sínu og þriðja marki PSG við eftir rúmlega klukkutíma leik eftir frábæran undirbúning Ousmane Dembele og Vitinha.

Það var síðan Khvicha Kvaratskhelia sem innsiglaði sigur liðsins eftir hraða sókn. Stuttu síðar fékk Marcus Thuram besta færi Inter een skotiið tiltölulega auðvelt fyrir Donnarumma.

Hinn 19 ára gamli Senny Mayulu kom inn á sem varamaður hjá PSG undir lokin og hann skoraði fimmta mark liðsins stuttu síðar. Ótrúlegir yfirburðir hjá PSG.

Fyrsti Meistaradeildartitill PSG í hús en Inter endar án titils á þessari leiktíð eftir að hafa barist hart um alla stærstu titlana.
Athugasemdir
banner
banner