Miron Muslic er búinn að samþykkja samningstilboð frá þýska félaginu Schalke og verður kynntur til leiks sem nýr þjálfari liðsins á næstu dögum.
Hinn 42 ára gamli Muslic tók við Plymouth í Championship deildinni og gerði flotta hluti með félagið án þess þó að takast að bjarga liðinu frá falli.
Plymouth vildi halda Muslic hjá sér en mörg félög voru áhugasöm um að tryggja sér þjónustu hans og varð Schalke að lokum fyrir valinu.
Schalke endaði um miðja B-deild í Þýskalandi á síðustu leiktíð og fær Muslic verðugt verkefni í hendurnar, að koma þessu fallna stórveldi aftur á réttan stall í efstu deild þýska boltans.
Schalke greiðir 1 milljón punda til að leysa hann undan samningi hjá Plymouth en Hannover, Köln og Hull City voru einnig meðal áhugasamra félaga.
Athugasemdir