Tímabilið hjá Inter hefur verið mikill rússíbani en liðið vann engan titil en höfnuðu í 2. sæti í tveimur af þremur keppnum, deildinni og Meistaradeildinni.
Liðið tapaði hins vegar í undanúrslitum ítalska bikarsins gegn grönnum sínum í AC Milan.
Liðið tapaði hins vegar í undanúrslitum ítalska bikarsins gegn grönnum sínum í AC Milan.
Liðið var lengi vel á toppi ítölsku deildarinnar með þónokkra yfirburði en tapaði að lokum baráttunni gegn Napoli. Simone Inzaghi sagði það fyrir nokkrum mánuðum síðan að stefnan væri sett á þrennuna en nú endar liðið tómhent.
Beppe Marotta, forset Inter, tjáði sig eftir leikinn í kvöld og sagði að starf Inizaghi væri ekki í hættu.
„Það er erfitt að komast í úrslit. Við komumst í gegnum lið á borð við Bayern og Barcelona. Við vorum brothættir í kvöld en ég vil þakka leikmönnunum og þjálfurum því hvernig þeir spiluðu þessa 59 leiki sýndi að þessi hópur á skilið að vera kominn hingað," sagði Marotta.
Athugasemdir