Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli
Venni: Honum líður vel og er ekki að fara neitt
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
   fim 31. maí 2012 23:29
Arnar Daði Arnarsson
Bjössi Hreiðars.: Aldurinn farinn að segja til sín
Mynd: Fótbolti.net - Hanna Símonardóttir
Spilandi aðstoðarþjálfari Hauka, Sigurbjörn Örn Hreiðarsson þurfti að horfa upp á Þróttara jafna metin í uppbótartíma gegn Hauka í kvöld, en Sigurbjörn fór af velli í fyrri hálfleik vegna meiðsla.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 -  1 Haukar

,,Það var mjög svekkjandi að fá á sig þetta jöfnunarmark á 90.mínútu, vegna þess að við vorum búnir að halda þessu í núllinu," sagði Sigurbjörn. Hann telur að jafnteflið í kvöld hafi verið sanngjörn úrslit,

,,Þegar upp er staðið er þetta kannski sanngjörn úrslit. Við áttum líklega ekki meira skilið í dag. Við vorum ekki nógu beittir í þessum leik, við vorum því miður hálf tæpir, vorum ekki eins og við eigum að vera, það er alveg á hreinu."

,,Þróttarar eru hinsvegar ágætir og það má ekkert taka það af þeim. Það er erfitt að eiga við þá, þegar þeir eru í góðum gír og mér fannst þeir vera í flottum gír í kvöld,"
sagði Sigurbjörn Hreiðarsson sem var sammála því að það hljóti að vera jákvætt að vera samt sem áður yfir í 90.mínútur þrátt fyrir að liðið hafi ekki átt sinn besta dag.

Sigurbjörn fór útaf í fyrri hálfleik vegna meiðsla og þar með stækkaði meiðslalisti Hauka sem er orðinn heldur stór,

,,Ég fékk eitthvað tak í kálfann, ég er búinn að vera aðeins tæpur í kálfanum og ég gat eiginlega ekkert haldið áfram. Maður er bara að verða of gamall í þetta. Það er ljóst að aldurinn er farinn að segja til sín, allavegana í dag," sagði Sigurbjörn sem fór síðan aðeins yfir byrjunina á mótinu hjá Haukum sem og yfir meiðslalistann hjá Haukum.

Viðtalið í heild sinni við Sigurbjörn er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner