Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli
Venni: Honum líður vel og er ekki að fara neitt
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
   mán 04. júní 2012 22:13
Arnar Daði Arnarsson
Þorlákur: Allir varamennirnir breyttu leiknum
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Þorlákur Árnason var að vonum ánægður með 2-0 sigur sinna stúlkna á FH í Garðabænum í kvöld, í 5.umferð Pepsi-deildar kvenna. Sigurinn var þó torsóttur í meira lagi.

,,FH-ingar komu baráttuglaðar til leiks og þær spiluðu mjög vel en hinsvegar fengu við ansi mörg tækifæri í fyrri hálfleik til að skora mörk en á meðan þú nýtir þau ekki þá á endanum fær hitt liðið færi eins og gerðist í stöðunni 0-0," sagði Þorlákur sem vitnar þá í byrjun seinni hálfleiks þegar FH-stelpur fengu tvö gjörsamlega dauðafæri, fyrra skiptið ein á móti varnarmanni Stjörnunnar og svo í seinna skiptið ein á móti Söndru í markinu,

,,Maður er auðvitað stressaður þegar hlutirnir ganga ekki upp og þetta var erfiður leikur gegn góðu liði en við fengum örmul af færum í þessum leik samt sem áður eins og í mörgum öðrum leikjum," svaraði Þorlákur aðspurður hvernig honum leið þegar FH sótti stíft á þær í byrjun seinni hálfleiks.

Inga Birna Friðjónsdóttir kom inn á sem varamaður á 55.mínútu, 8 mínútum síðar var hún búin að leggja upp mark og síðan skoraði hún seinna mark Stjörnunnar, Þorlákur var virkilega ánægður með innkomu hennar sem og allra varamannana, sem komu inná,

,,Inga Birna breytti leiknum, við erum með góða breidd og allir þrír varamennirnir sem komu inn á, í dag breyttu leiknum," sagði Þorlákur.

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner