Sigurður Helgason, þjálfari Gróttu, var að vonum svekktur eftir 4-1 tap sinna manna gegn Stjörnunni í Borgunarbikarnum í kvöld.
Lestu um leikinn: Stjarnan 4 - 1 Grótta
,,Við leggjum upp leikinn með að halda markinu hreinu og halda því hreinu sem lengst inn í leikinn. Við fáum á okkur mark, sem ég held að vörnin hjá þeim hafi bara hreinsað fram og upp úr því skora þeir 1-0 og við vissum að það yrði möguleiki þótt staðan væri bara 1-0," sagði Siggi við Fótbolta.net að leik loknum.
,,Við ræddum það í hálfleik að það væri möguleiki meðan staðan væri 1-0, en þegar þeir skora annað markið þá var þetta orðið dálítil brekka."
,,Við fengum algjört dauðafæri í stöðunni 1-0 og það hefði verið gaman að sjá hvernig þeir hefðu brugðist við því. Mér fannst við ekki vera opnu okkar það mikið og þeir áttu í smá vandamálum með að fá opin færi á móti okkur," sagði Siggi að lokum, sem er mikill stuðningsmaður Manchester City.
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
























