Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   sun 01. febrúar 2026 20:31
Ívan Guðjón Baldursson
Merino braut bein - Arsenal skoðar lánamarkaðinn
Mynd: EPA
Spænski miðjumaðurinn Mikel Merino er líklega með brotið bein í fæti samkvæmt David Ornstein hjá The Athletic.

Merino hefur fundið fyrir óþægindum í fæti og benda fyrstu rannsóknir til þess að hann sé brotinn. Þetta þýðir að leikmaðurinn verður frá keppni næstu vikurnar eða jafnvel mánuðina.

Arsenal, sem trónir á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, er því í leit að nýjum miðjumanni til að fylla í skarðið en félagið hefur ekki áhuga á að kaupa inn nýjan leikmann svo seint í janúar. Því ætlar stórveldið að skoða lánamarkaðinn til að reyna að fá liðsstyrk út tímabilið.

Það er þétt leikjaprógram framundan hjá Arsenal sem er ennþá með í öllum keppnum og mætir Chelsea í undanúrslitum deildabikarsins á þriðjudagskvöldið.
Athugasemdir
banner
banner