Sigurður Bjartur Hallsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir AD Merida á Spáni í gær en hann gekk til liðs við félagið frá FH á dögunum. Þetta var fyrsti keppnisleikur Sigurðar síðan í október.
Hann fór beint í byrjunarliðið og spilaði tæpar 70 mínútur í 2-1 sigri á Real Aviles. Hann átti þátt í fyrra marki liðsins. Merida fór upp í 9. sæti með 32 stig, tveimur stigum á undan Aviles og tveimur stigum frá umspilssæti.
Valgeir Lunddal Friðriksson spilaði sinn fyrsta leik síðan í lok september þegar hann kom inn á sem varamaður í 2-1 sigri Dusseldorf gegn Paderborn í næst efstu deild í Þýskalandi. Dusseldorf stökk upp úr fallsæti og er í 13. sæti með 23 stig eftir 20 umferðir.
Jón Dagur Þorsteinsson var ekki með Hertha Berlin þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Darmstadt en hann hefur verið orðaður í burtu frá félaginu og til Brann. Hertha er í 7. sæti með 31 stig.
Athugasemdir



