Höjlund gæti verið lánaður til Inter - Tveir sóknarmenn orðaðir við Man Utd - Wirtz með samkomulag við Liverpool - City færist nær Reijnders
   sun 01. júní 2025 21:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deildin: Breiðablik með sannfærandi sigur gegn Víkingi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik 3 - 1 Víkingur R.
1-0 Tobias Bendix Thomsen ('17 )
2-0 Viktor Örn Margeirsson ('32 )
3-0 Tobias Bendix Thomsen ('52 )
3-1 Matthías Vilhjálmsson ('88 )
Lestu um leikinn

Breiðablik vann sannfærandi sigur á Víkingi á Kópavogsvelli í kvöld.

Víkingar byrjuðu leikinn betur og Helgi Guðjónsson átti skot í stöngina og þaðan fór boltinn í Anton Ara sem náði að handsama boltann að lokum.

Eftir rúman stundafjórðung tókst Blikum að brjóta ísinn. Viktor Karl Einarsson átti sendingu inn á teiginn á Tobias Thomsen sem tók vel á móti boltanum og skoraði laglegt mark.

Stuttu síðar var Valdimar Þór Ingimundarson nálægt því að sleppa í gegn en Viktor Örn Margeirsson gerði hrikalega vel að koma sér fyrir og koma í veg fyrir dauðafæri.

Viktor Örn lét síðan til sín taka hinu megin á vellinum þegar hann kom boltanum í netið eftir að Tobias skallaði boltann til hans.

Helgi var nálægt því að minnka muninn en boltinn fór rétt framhjá eftir skalla frá honum. Breiðablik fór því með tveggja marka forystu inn í hálfleikinn.

Tobias gerði síðan út um leikinn snemma í seinni hálfleik eftir sendingu frá Ágústi Orra.

Matthías Vilhjálmsson klóraði í bakkann undir lok leiksins þegar hann vann boltann af Höskuldu Gunnlaugssyni eftir sendingu frá Antoni Ara. Matthías komst einn á móti Antoni og setti boltann framhjá honum og í netið.

Nær komust Víkingar ekki og öruggur sigur Blika staðreynd. Breiðablik fer upp í 2. sæti með 19 stig, stigi á eftir Víkingum.
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 10 6 2 2 19 - 11 +8 20
2.    Breiðablik 10 6 1 3 17 - 16 +1 19
3.    Valur 10 5 3 2 22 - 13 +9 18
4.    Vestri 10 5 1 4 12 - 7 +5 16
5.    Stjarnan 10 4 2 4 17 - 18 -1 14
6.    ÍBV 10 4 2 4 12 - 15 -3 14
7.    KR 10 3 4 3 28 - 23 +5 13
8.    Fram 10 4 0 6 16 - 17 -1 12
9.    KA 10 3 3 4 10 - 17 -7 12
10.    FH 10 3 2 5 15 - 14 +1 11
11.    Afturelding 10 3 2 5 8 - 13 -5 11
12.    ÍA 10 3 0 7 12 - 24 -12 9
Athugasemdir
banner
banner