Mads Bøyum, fréttamaður Bergens Tidende, segir við Fótbolta.net að frammistaða Eggerts Arons Guðmundssonar með Brann sé það sem hefur komið skemmtilegast á óvart á yfirstandandi tímabili.
Eggert Aron gekk í raðir Brann í vetur eftir að hafa fengið fá tækifæri með Elfsborg í Svíþjóð. Hjá Brann hefur hann fengið traustið hjá Frey Alexanderssyni og stuðningsmennirnir dýrka hann.
Eggert Aron gekk í raðir Brann í vetur eftir að hafa fengið fá tækifæri með Elfsborg í Svíþjóð. Hjá Brann hefur hann fengið traustið hjá Frey Alexanderssyni og stuðningsmennirnir dýrka hann.
„Eggert hefur verið sá sem hefur komið skemmtilegast á óvart fyrir marga á þessu tímabili," segir Bøyum við Fótbolta.net.
„Hann kom frá Elfsborg og hafði ekki spilað mikið þar. Fólk var undirbúið fyrir það að gefa honum tíma. Við sáum að hann var góður fótboltamaður á undirbúningstímabilinu en hann gæti þurft tíma. Svo þegar deildin byrjaði þá fór hann að spila betur og hann er núna búinn að skora tvö frábær mörk. Núna efast enginn um það að hann eigi að vera í liðinu. Við höfum talað um það í hlaðvarpinu okkar að hann eigi bara eftir að verða betri."
„Eins og Freyr, þá kann hann vel við pressuna að spila fyrir framan fullan völl. Það virðist gefa honum orku. Aðrir verða kannski stressaðir en það er ekki þannig fyrir Eggert. Það er það sama með Frey, hann passar vel við stuðningsmannahópinn og er ekkert hræddur," sagði Bøyum.
Athugasemdir