Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   sun 01. júní 2025 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enrique jafnaði árangur Guardiola - Unnið þrennuna með tveimur liðum
Mynd: EPA
Luis Enrique vann Meistaradeildina sem stjóri PSG en þetta var fyrsti Meistaradeildartitill félagsins.

PSG hefur átt fullkomið tímabil en liðið varð deildarmeistari í Frakklandi og bikarmeistari.

Enrique hefur áður unnið þrennuna sem stjóri en það gerði hann sem stjóri Barcelona. Hann er annar stjórinn í sögunnii til að vinna þrennuna með tveimur liðum. Það hefur Pep Guardiola einnig gert, með Man City og einnig með Barcelona.

Þá er Enrique sjötti stjórinn til að vinna keppnina með tveimur liðum. Ásamt Guardiola eru Ottmar Hitzfeld (Borussia Dortmund og Bayern München), Jupp Heynckes (Real Madríd og Bayern), José Mourinho (Porto og Inter) og Carlo Ancelotti (AC Milan og Real Madrid) á listanum.



Slapp
Athugasemdir
banner