Norður-írski miðvörðurinn Jonny Evans hefur tekið ákvörðun um að leggja skóna á hilluna.
Evans, sem er 37 ára gamall, spilaði þrettán leiki í öllum keppnum með Manchester United á tímabilinu en þetta var annað tímabil hans í endurkomunni með United.
Varnarmaðurinn er uppalinn hjá United og var sá síðasti í hópnum til að spila undir Sir Alex Ferguson. Tom Heaton, þriðji markvörður United, var vissulega á mála hjá félaginu á sama tíma og Evans, en spilaði aldrei fyrir Ferguson.
Hann lék með 198 leiki og skoraði 7 mörk með liðinu frá 2007 til 2015 þar sem hann vann sjö titla.
Evans samdi við WBA árið 2015 þar sem hann lék í þrjú ár áður en hann skipti yfir í Leicester. Þar spilaði hann mjög vel á fimm árum sínum áður en hann samdi óvænt aftur við Man Utd.
Norður-Írinn var fenginn inn á tíma Erik ten Hag þar sem honum var upphaflega ætlað að koma með reynslu og hjálpa öðrum að taka skrefið inn í aðalliðið, en hugmyndin var ekki að gera hann að fastamanni.
Það breyttist vegna meiðsla í hópnum og fór það svo að hann lék 43 leiki á þessum tveimur tímabilum og vann enska bikarinn í fyrsta sinn á ferli sínum.
Eftir leik Man Utd við Hong Kong stuttu eftir tímabil var tilkynnt að skórnir væru komnir upp í hillu.
Evans spilaði 107 landsleiki fyrir Norður-Írland og skoraði 6 mörk, en hann náði sögulegum árangri með landsliðinu er það komst í fyrsta sinn á EM árið 2016.
???? Official: Jonny Evans ???????????????????????????? from professional football after leaving United ??????????
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 31, 2025
???? x4 Community Shield
???? x3 Premier League
???? x2 Football League Cup
???? x1 Champions League
???? x1 FA Cup
???? x1 Club World Cup pic.twitter.com/v9nHhh8EpI
Athugasemdir