
U21 árs landsliðið hefur fengið nýjan andstæðing í æfingaferð sem liðið fer í til Egyptalands.
Liðið átti að mæta heimamönnum 6. júní en af óviðráðanlegum orsökum hafa Egyptar þurft að draga lið sitt til baka. Brasilía hefur tekið sæti Egypta en liðin munu mætast 5. júní.
Liðið átti að mæta heimamönnum 6. júní en af óviðráðanlegum orsökum hafa Egyptar þurft að draga lið sitt til baka. Brasilía hefur tekið sæti Egypta en liðin munu mætast 5. júní.
Seinni leikurinn verður einnig færður um einn dag en hann átti að fara fram 9. júní. Íslenska liðið mætir jafnöldrum sínum frá Kólumbíu 8. júní. Báðir leikirnir fara fram í Kaíró í Egyptalandi.
Undankeppnin fyrir EM 2027 hefst svo í haust en Ísland er í riðli með Færeyjum, Eistlandi, Sviss, Frakklandi og Lúxemborg.
Athugasemdir