Það er komið um tuttugu daga frí í norska boltanum en Viking er með sex stiga forystu á Brann á toppi deildarinnar.
Brann lagði Kristiansund 4-2 í dag þar sem Eggert Aron Guðmundsson lagði upp eitt marka liðsins.
Brann lagði Kristiansund 4-2 í dag þar sem Eggert Aron Guðmundsson lagði upp eitt marka liðsins.
Hilmir Rafn Mikaelsson kom inn á undir lokin þegar Viking lagði Molde 1-0 á útivelli. Eins og fyrr segir er liðið með sex stiga forystu á Brann en Viking er búið að spila einum leik meira.
Rúnar Þór Sigurgeirsson kom inn á eftir rúmlega klukkutíma leik þegar Willem II tapaði í 3-1 gegn Telstar í umspili um sæti í efstu deild en liðið hafnaði í þriðja neðsta sæti í deildinni og fór þess vegna í umspilið gegn Telstar sem hafnaði í 3. sæti næst efstu deildar.
Tapið þýðir að liðið er fallið en fyrri leiknum lauk með jafntefli.
Athugasemdir