Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var að vonum hundsvekktur eftir 2-1 tap gegn Stjörnunni í framlengdum undanúrslitaleik Borgunarbikarsins í Garðabænum í kvöld.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 1 KR
„Þetta var gríðarlega jafn leikur og gat fallið hvoru megin sem var. Leikurinn spilaðist mjög vel, eins og við vildum hann, við vorum mjög vel skipulagðir og heimavinnan gekk eftir,“ sagði Rúnar.
„Þetta er gríðarlegt áfall, við höfum verið hérna síðustu þrjú skipti og við vildum fara þarna aftur. En það eru alltaf einhverjir aðrir sem fá að njóta þess í staðinn og við verðum bara að leyfa Stjörnunni í þetta sinn að eiga möguleika á bikarnum.“
„Þetta var flottur fótboltaleikur og allir gátu skemmt sér nema við strákarnir í KR, við erum ekkert gríðarlega sáttir."
Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.























