Ítalska félagið Sassuolo hefur virkjað kaupákvæði í samningi kanadíska landsliðsmannsins Ismael Kone en þetta segir Fabrizio Romano á X.
Sassuolo fékk Kone á láni frá Marseille síðasta sumar og er afar ánægt með frammistöðu hans á tímabilinu.
Ítalska félagið átti möguleika á því að gera skiptin varanleg fyrir 13 milljónir evra og hefur það ákvæði verið virkt.
Kone er 23 ára gamall miðjumaður sem hefur spilað 20 leiki og skorað 4 mörk í Seríu A á þessari leiktíð.
Hann gæti spilað stórt hlutverk í kanadíska landsliðinu sem mun halda HM ásamt Bandaríkjunum og Mexíkó í sumar.
Athugasemdir



