Liam Delap, framherji Ipswich, er á leið til Chelsea og verður kynntur í dag ef læknisskoðunin fer vel. Delap er enskur framherji sem átti gott tímabil með Ipswich sem féll úr ensku úrvalsdeildinni.
Bæði Man Utd og Chelsea voru á eftir honum, en Chelsea varð niðurstaðan. Chelsea vill fá Delap inn í hópinn sinn fyrir HM félagsliða. Ef Chelsea skráir hann í þann hóp missir Delap af lokamóti EM U21 landsliða. Delap er í stóra hópnum hjá enska U21 liðinu en lokahópurinn verður kynntur á föstudag.
Chelsea greiðir 30 milljónir punda fyrir Delap.

Það er þá nóg að gera á skrifstofunni hjá Brentford. Aðalmarkmaður liðsins, Mark Flekken, er á leið til Bayer Leverkusen og þá er Brentford að klára kaup á Caoimhin Kelleher, varamarkverði Liverpool..
Brentford er sagt fá ellefu milljónir punda fyrir Flekken sem skrifar undir samning til 2028 við Leverkusen.
Brentford er þá sagt greiða tólf og hálfa milljón punda fyrir hinn írska Kelleher en sá verðmiði getur hækkað upp í átján milljónir punda með árangurstegndum greiðslum.
Athugasemdir