Stabæk 1 - 1 Valerenga
Vålerenga sótti Stabæk heim í lokaleik Eliteserien í dag. Viðar Örn Kjartansson og Matthías Vilhjálmsson voru báðir í byrjunarliði Vålerenga og lék Viðar allan leikinn. Matti fór af velli á 66. mínútu.
Vålerenga komst yfir á 9. mínútu þegar Matthías Vilhjálmsson skallaði sendingu úr öftustu línu aftur fyrir sig og Viðar Örn kom boltanum í netið, virkilega gott íslenskt mark.
Með því að smella hér getur þú séð markið.
Stabæk jafnaði leikinn á 64. mínútu og reyndist það lokamark leiksins. Vålerenga er í 3. sæti deildarinnar með 48 stig og í góðri stöðu í baráttu um Evrópudeildarsæti.
Vilhjalmsson -> Kjartansson -> mål og sånn. 1-0!
— EspenB (@espbjo) December 2, 2020
Athugasemdir