Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
   fös 26. desember 2025 22:50
Brynjar Ingi Erluson
„Við eigum heima í Evrópu“
Mynd: EPA
Varnarmaðurinn ungi Ayden Heaven var hæstánægður með frammistöðu sinna manna í Manchester United í 1-0 sigrinum á Newcastle United í kvöld.

Heaven var hægra megin í fjögurra manna vörn og var besti maður leiksins að mati Sky Sports.

„Loksins héldum við hreinu. Við höfum beðið eftir þessu og ég er bara svo ótrúlega ánægður. Þessi náungi (Dorgu) hjálpaði okkur að landa þessu og ég er bara svo þakklátur öllum sem hjálpuðu okkur,“ sagði Heaven.

Amorim fór í fjögurra manna vörn en hann hefur verið svolítið þver með að láta þá bara spila þriggja eða fimm manna vörn. Heaven segir hann nota mörg leikkerfi.

„Það var aftur öðruvísi. Ég var hægra megin, sem er auðvitað veikari fóturinn á mér. Stjórinn lætur okkur spila fullt af leikkerfum og við vitum að allt sem hann þekkir mun virka. Þið sáuð það í dag og ég er svo stoltur af liðinu.“

„Við, sem Manchester United, eigum heima í Evrópu. Við viljum komast aftur þangað á næsta tímabili þannig við getum byggt ofan á það með því að komast í topp fjóra og mögulega vinna deildina. Okkur eru allir vegir færir og við viljum bara halda áfram að reyna,“
sagði Heaven í lokin.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 31 15 10 6 56 43 +13 55
4 Aston Villa 31 16 6 9 42 37 +5 54
5 Liverpool 31 14 7 10 50 42 +8 49
6 Chelsea 31 13 9 9 53 38 +15 48
7 Brentford 31 13 7 11 46 42 +4 46
8 Everton 31 13 7 11 37 35 +2 46
9 Fulham 31 13 5 13 43 44 -1 44
10 Brighton 31 11 10 10 41 37 +4 43
11 Sunderland 31 11 10 10 32 36 -4 43
12 Newcastle 31 12 6 13 44 45 -1 42
13 Bournemouth 31 9 15 7 46 48 -2 42
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 31 7 12 12 37 48 -11 33
16 Nott. Forest 31 8 8 15 31 43 -12 32
17 Tottenham 31 7 9 15 40 50 -10 30
18 West Ham 31 7 8 16 36 57 -21 29
19 Burnley 31 4 8 19 33 61 -28 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Slapp
banner