Koné fer til Manchester - Zirkzee fær loforð frá Roma - Chelsea og Villa skoða Santi Castro - John Terry til Oxford? - Aké eftirsóttur
   sun 28. desember 2025 22:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mourinho ósáttur eftir jafntefli - „Unnum 3-2"
Mynd: EPA
Jose Mourinho, stjóri Benfica, var ósáttur eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Braga í portúgölsku deildinni í kvöld.

Staðan var 2-2 eftir 53 mínútna leik. Simon Dahl skoraði fyrir Benfica á 74. mínútu en markið var dæmt af þar sem Richard Rios, liðsfélagi Dahl, var dæmdur brotlegur.

„Braga yfirspilaði okkur í fyrri hálfleik. Við náðum tökum á leiknum á stuttum köflum, skoruðum eftir föst leikatriði en við áttum seinni hálfleikinn, Braga hvarf. Leikmennirnir sneru blaðinu við og það er risastórt að ná í 3-2 sigur," sagði Mourinho.

Mourinho hélt áfram eftir að fréttamaðurinn benti honum á hvernig leikurinn fór.

„Við unnum 3-2, ég sá þriðja markið skýrt og greinilega. Ég skoðaði þetta í sama skjánum og VAR notar, þetta var löglegt mark. Þetta er risasigur, við unnum, við unnum," sagði Mourinho.
Athugasemdir