Florian Wirtz fékk talsverða gagnrýni snemma á tímabilinu enda miklar væntingar eftir að Liverpool keypti hann á 116 milljónir punda. Eftir rólega byrjun er hann farinn að finna sig og er með fjögur mörk í síðustu sjö leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
Jamie Carragher var sá sem gagnrýndi Wirtz hvað mest og hafði efasemdir um að hann gæti staðið sig í ensku úrvalsdeildinni. Carragher hefur heldur betur skipt um skoðun og líkir Þjóðverjanum núna við tvær goðsagnir úr deildinni.

„Wirtz er stöðugt að verða betri. Það er enginn vafi á því að þessi náungi er með rosalega hæfileika. Enska úrvalsdeildin missti Kevin De Bruyne en við höfum fengið Wirtz," sagði Carragher í þætti sínum á Sky Sports.
„Við erum að tala um það þegar sérstakir leikmenn koma inn í deildina. Það getur verið svo gaman að horfa á Wirtz, ekki ólíkt David Silva. Sjálfstraustið hjá Wirtz er orðið mun meira. Hann virkaði eins og lítill strákur í upphafi tímabils en hefur losað sig við það."
Carragher var í banastuði í þætti sínum og hrósaði einnig Hugo Ekitike. Hann segir Ekitike vera betri leikmann en Fernando Torres, sem Carragher spilaði með hjá Liverpool á sínum tíma.
Athugasemdir