Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   lau 03. maí 2025 16:49
Brynjar Ingi Erluson
Besta deild kvenna: FH-ingar afgreiddu Þór/KA á sextán mínútum
Kvenaboltinn
Elísa Lana skoraði þriðja mark FH-inga í leiknum
Elísa Lana skoraði þriðja mark FH-inga í leiknum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór/KA er búið að tapa tveimur í röð
Þór/KA er búið að tapa tveimur í röð
Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson
Þór/KA 0 - 3 FH
0-1 Valgerður Ósk Valsdóttir ('22 )
0-2 Berglind Freyja Hlynsdóttir ('27 )
0-3 Elísa Lana Sigurjónsdóttir ('38 )
Lestu um leikinn

Þór/KA fékk þriggja marka skell gegn Val í síðustu umferð Bestu deildar kvenna og náði liðið greinilega ekki að hrista það af sér en liðið tapaði annan leikinn í röð með þremur mörkum gegn engu er FH kom í heimsókn í Bogann á Akureyri í dag.

Heimakonur í Þór/KA sköpuðu sér nóg af góðum færum í fyrri hluta fyrri hálfleiks og voru líklegri til að taka forystuna. Því kom það algerlega gegn gangi leiksins þegar Valgerður Ósk Valsdóttir kom FH-ingum í 1-0 þegar tæpar 22 mínútur voru komnar á klukkuna.

FH-ingar unnu boltann á vallarhelmingi Þór/KA og var það Valgerður sem fékk boltann. Hún náði að snúa og senda boltann undir Jessicu Grace í markinu.

Fimm mínútum síðar kom annað mark FH. Berglind Freyja Hlynsdóttir gerði það er boltinn barst til hennar í teignum og hefði Jessica líklega getað gert betur í markinu.

FH hamraði járnið meðan það var heitt og hélt áfram að skapa sér færi. Þriðja markið kom síðan á 38. mínútu. Berglind kom boltanum fyrir á Elísu Lönu Sigurjónsdóttur sem gerði þriðja markið.

Þrjú mörk á sextán mínútum og leiknum svo gott sem lokið á þessu augnabliki.

Þór/KA reyndi að koma sér aftur inn í leikinn í þeim síðari og sótti liðið stíft að marki FH-inga þegar leið á síðari hálfleikinn, en vantaði bara upp á að koma boltanum í netið.

FH fagnaði þriðja sigrinum á tímabilinu og er nú með 10 stig eins og topplið Breiðabliks, en Þór/KA með sex stig. Akureyringar unnu fyrstu tvo leiki sían en hafa nú tapað tveimur í röð.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
Athugasemdir
banner