Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   þri 03. júní 2025 09:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Chelsea borgar sekt fyrir Sancho
Jadon Sancho.
Jadon Sancho.
Mynd: EPA
Jadon Sancho mun snúa aftur til Manchester United í sumar eftir að Chelsea tókst ekki að ná persónulegu samkomulagi við hann.

Sancho var lánaður til Chelsea síðasta sumar með kaupskyldu upp á 25 milljónir punda. Það var samt sem áður klásúla í samningnum að Chelsea gæti sent hann til baka og borgað Man Utd 5 milljón punda sekt.

Það er núna ljóst að Chelsea ætlar að borga þá sekt þar sem Lundúnafélaginu hefur ekki tekist að ná persónulegu samkomulagi við Sancho.

Chelsea hefði þurft að borga 25 milljónir punda til þess að kaupa Sancho.

Sancho spilaði 41 leik fyrir Chelsea og skoraði fimm mörk.

Hann kemur ekki til með að vera áfram hjá Man Utd sem mun leitast eftir því að selja hann í sumar.
Athugasemdir
banner