Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Crystal Palace vonast til að fá þátttökuleyfi í Evrópudeildinni
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sky Sports er meðal fjölmiðla sem greinir frá því að Crystal Palace sé komið í viðræður við evrópska fótboltasambandið UEFA um þátttöku félagsins í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.

Palace vann fyrsta stóra titilinn í sögu sinni á dögunum þegar Eberechi Eze skoraði sigurmarkið í úrslitaleik FA bikarsins gegn stórveldi Manchester City.

Sigurinn tryggði félaginu þátttökurétt í Evrópudeildinni á næstu leiktíð en UEFA reglur gætu komið í veg fyrir þátttöku Palace.

Samkvæmt reglum UEFA mega tvö félög, sem eru í eigu sömu aðila, ekki taka þátt í sömu Evrópukeppni. Það er tilfellið með Crystal Palace og franska félagið Olympique Lyonnais sem tryggðu sér bæði sæti í Evrópudeildinni fyrir næstu leiktíð.

John Textor er meirihlutaeigandi í Lyon auk þess að eiga 43% hlut í Crystal Palace.

Mögulegt er að UEFA neyði Textor til að selja hlut sinn í Crystal Palace eða Lyon eða banni öðru félaginu að taka þátt í Evrópudeildinni.

Það félag yrði Crystal Palace, vegna þess að Lyon endaði ofar í frönsku deildinni heldur en Palace gerði í ensku deildinni.

Ef það gerist þá fær Nottingham Forest sætið frá Palace í Evrópudeildinni á meðan Brighton fær sætið frá Forest í Sambandsdeildinni.

Það yrði mikill skellur fyrir Palace þar sem Brighton er eitt helsta fjandlið félagsins.
Athugasemdir
banner
banner