Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 21:23
Haraldur Örn Haraldsson
„Klárlega fúlt að markið sem breytir leiknum sé rangstaða"
Icelandair
EM KVK 2025
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísland tapaði fyrir Frakklandi í kvöld 2-0 í loka leik liðsins í Þjóðadeild kvenna. Þorsteinn Halldórsson sat fyrir spurningum á fréttamannafundi eftir leik og sagðist aðallega ósáttur við færanýtinguna.


„Erfiður leikur, við vorum svona fyrsta korterið, þá var ekki nægt hugrekki í okkur, við stigum ekki upp á þær og vorum svona hálft í hálft mikið," sagði Þorsteinn.

„Svo unnum við okkur inn í fyrri hálfleiknum og ég var ánægður með síðustu 20 mínúturnar. Þá var ég sáttur, þá vorum við að ýta á þær og þrýsta þeim neðst niður, þorðum að spila. Þetta var svolítið svona leikur þar sem við vorum að flýta okkur of mikið á boltanum. Við vorum að taka við boltanum, og vorum að rembast við að koma okkur í sendingu, en vorum svo kannski ekki í jafnvægi til að taka sendingu. Í seinni hálfleik var þetta ennþá erfiðara, bætti aðeins í vindinn. Þá líka áttum við erfitt með að halda boltanum uppi, þannig við gætum verið að flytja liðið upp. Þær eru náttúrulega bara drullu góðar, og við vissum alveg að við myndum lenda í því, og sættum okkur alveg við það að við þurftum að verjast í langan tíma. Við vorum ekkert hrædd við það. En við þurfum að nýta færin til að vinna leiki."

Það var gríðarlega hvasst á vellinum í kvöld en Ísland var með vindinn í bakið í fyrri hálfleik og hefði þurft að nýta þann tíma til að skora.

„Við þurfum að nýta færin sem við fáum til að gera eitthvað í leiknum. Það var það sem við gerðum ekki, þannig það varð erfiðara fyrir okkur. Í seinni hálfleik þá fannst mér þær ekkert vera að opna okkur, þær voru alveg að spila fyrir framan og voru að komast í einhverjar fyrirgjafastöður og voru ekkert á fá einhver dauðafæri endilega. Þær fengu eitt, hvort að staðan hafi verið orðin 1-0 þá, ég man það ekki. Mér leið alveg vel, þótt þær hafi verið að sækja mikið og spila mikið fyrir framan okkur. Þá voru þær ekkert að koma sér í nein dauðafæri, allavega ekkert sem ég man eftir., ekkert eitthvað sem ég var skíthræddur við. "

Fyrsta markið sem Frakkland skorar í leiknum hefði ekki átt að standa þar sem leikmaður Frakklands var í rangstöðu. 

„Það er svekkjandi þegar þú horfir á það að það sé rangstaða. Auðvitað er það fúlt að markið kemur upp úr því. Mér fannst hún reyndar líka mjög fljót að flauta innkastið á, þær voru svona rétt að koma inn á þegar hún leyfir leiknum að byrja. Fanndís var varla komin yfir þegar hún raunverulega flautar leikinn á. Klárlega er það fúlt að markið sem breytir leiknum hafi verið rangstaða, það er ekki spurning."


Athugasemdir
banner
banner