Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   þri 03. júní 2025 11:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nokkur félög búin að spyrjast fyrir um Sancho
Mynd: Chelsea
Eins og sagt var frá fyrr í dag þá verður Jadon Sancho ekki áfram leikmaður Chelsea.

Félagið fékk hann á láni með kaupskyldu síðasta sumar en tókst ekki að ná persónulegi samkomulagi við hann. Því þarf Lundúnafélagið að borga 5 milljónir punda til Manchester United í sekt.

Kantmaðurinn snýr núna aftur til Man Utd en það eru svo gott sem engar líkur á því að hann verði áfram þar.

Sky Sports segir að Man Utd sé að búast við því að fá tilboð í hann. Það séu félög í ensku úrvalsdeildinni og annars staðar búin að spyrjast fyrir um hann.

Man Utd vonast til þess að geta selt Sancho en háar launakröfur hans merkja það að ekki sé hægt að útiloka annað lán.

Hann hefur meðal annars verið orðaður við félög í Þýskalandi en þar hefur honum liðið best í gegnum ferilinn með Borussia Dortmund.
Athugasemdir
banner
banner