Verður löglegur með Brann eftir mánuð

Sævar Atli Magnússon gekk í raðir norska félagsins Brann á dögunum og skrifaði hann undir samning sem gildir til ársins 2029.
Sævar Atli er 24 ára sóknarmaður sem getur einnig spilað á miðjunni. Hann kemur á frjálsri sölu frá Lyngby hvar hann hefur spilað síðan haustið 2021.
Sævar Atli er 24 ára sóknarmaður sem getur einnig spilað á miðjunni. Hann kemur á frjálsri sölu frá Lyngby hvar hann hefur spilað síðan haustið 2021.
Hjá Brann hittir Sævar Atli fyrir sinnum fyrrum þjálfara, Frey Alexandersson, en þeir unnu saman hjá Lyngby þar til Freyr samdi við Kortrijk í Belgíu í upphafi árs 2024.
„Seinasti leikurinn minn var á laugardaginn og ég skrifaði undir á miðvikudag. Þetta tók ekki langan tíma. Eins og allir vita, þá var þetta efst á lista hjá mér þó ég hafi fengið úr mörgum möguleikum að velja. Þetta var það sem heillaði mest," sagði Sævar.
„Þegar maður er samningslaus þá fær maður alltaf nokkra möguleika þar sem félög þurfa ekki að borga fyrir mann. Brann reyndi að fá mig í janúar og ég vissi af áhuganum í sex mánuði. Það komu alls konar möguleikar upp en ég tók bara það sem mér leist best á."
Var geggjaður tími
Sævar var hjá Lyngby frá 2021 og má segja að hjarta hans hafi orðið blátt að miklu leyti. Hann var mjög vinsæll hjá félaginu og var undir lokin kominn í fyrirliðahóp.
Kom einhvern tímann til greina að halda áfram þar?
„Það var alveg hugmynd um það að einhverju leyti. Ég komst inn í fyrirliðahópinn í janúar og það heillar mjög mikið. Ég fékk að vera með bandið í einum leik og það er risastórt. Eftir að við féllum, þá ákvað ég að ég þyrfti að prófa eitthvað nýtt. Samningaviðræður við Lyngby gengu líka alls ekki nógu vel. Það pirraði mig," sagði Sævar.
„Ég tók ákvörðunina strax eftir að við féllum."
„Lyngby og Leiknir eru einu félögin sem ég hef spilað fyrir. Ég var klárlega orðinn blár. Á hverju einasta ári fyrir utan tímabilið í ár þá endum við tímabilið á góðum nótum. Það er mjög súrt að enda tíma minn hjá félaginu svona. Það tók mig langan tíma að jafna mig á þessu. En ef ég lít til baka, þá náði ég að klukka 127 leiki og 90+ leiki í efstu deild í Danmörku. Ég bjóst ekki við því þegar ég mætti. Þetta var geggjaður tími og ég held að ég sé kominn á góðan stað í Lyngby sögunni."
Getur leyst ýmsar stöður
Á tíma sínum hjá Lyngby hefur Sævar breyst nokkuð sem leikmaður. Hann fer út sem sóknarmaður en er miklu meira en það í dag.
„Ég er keyptur út eftir að hafa átt gott tímabil með Leikni þar sem ég skora helling af mörkum," sagði Sævar.
„Þegar ég kem út til Lyngby, þá eru þeir með rosalega góða framherja. Ég kem oft inn af bekknum og kem inn með mikla orku. Ég spila sem framherji fyrsta árið, en svo kemur tímapunktur þar sem Freyr og þjálfarateymið ákveður að spila mér inn á miðjunni sem mér leist mjög vel á. Það er mikil orka í mér og ég er góður varnarmaður. Það gekk mjög vel á miðjunni en undanfarið hef ég spilað fjórar eða fimm stöður; miðju, kanti og hægri bakvörð líka. Ég var kominn með þann 'status' hjá Lyngby að mér er hent út um allt og ég get leyst það."
„Mér líður klárlega best á miðjunni sem átta, ekki sem tía. Ég hef ekki spilað frammi í tvö og hálft ár, en það eru mörk í mér," segir Sævar en hann er keyptur til Brann til að leysa hinar ýmsu stöður.
Sævar, sem var nýverið kallaður inn í landsliðshópinn, hefur aldrei á ferlinum verið að berjast um titla en það er eitthvað sem honum dreymir um. Það er möguleiki á því hjá Brann en liðið er í öðru sæti norsku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir