Arne Slot, stjóri Liverpool, fór til Frakklands í síðustu viku þar sem hann ræddi við Rayan Cherki, leikmann Lyon.
Liverpool er núna komið langt í viðræðum um Florian Wirtz, leikmann Leverkusen, en áður en það fór langt þá var Cherki á lista félagsins.
Liverpool er núna komið langt í viðræðum um Florian Wirtz, leikmann Leverkusen, en áður en það fór langt þá var Cherki á lista félagsins.
Liverpool planaði fund með honum og Slot tók tíma úr sínu fríi til að ræða við hann í Frakklandi.
Þetta mun þó líklega ekki fara lengra með Cherki því Wirtz er langefstur á lista Liverpool.
Cherki, sem er afar skemmtilegur leikmaður, er núna sterklega orðaður við Manchester City. Hann er metinn á um 35 milljónir punda og er talsvert ódýrari kostur en Wirtz.
Athugasemdir