Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 18:28
Ívan Guðjón Baldursson
Tilbúnir til að lækka verðmiðann á Bellingham
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Borussia Dortmund og Sunderland eru í viðræðum um Jobe Bellingham, sem vill ólmur feta í fótspor stóra bróðurs sins Jude og spila fyrir þýska félagið.

   02.06.2025 21:30
Bellingham vill feta í fótspor bróður síns


Það var mikill munur á verðmati félaganna á Jobe Bellingham en nú greinir Sky í Þýskalandi frá því að Sunderland sé reiðubúið til að lækka kröfurnar.

Riftunarákvæði í samningi Bellingham við Sunderland hljóðar upp á 33 milljónir punda en félagið er tilbúið til að selja miðjumanninn fyrir 25 milljónir vegna heiðursmannasamkomulags við leikmanninn.

Fleiri félög í Þýskalandi eru áhugasöm um Bellingham en hann neitaði bæði RB Leipzig og Eintracht Frankfurt og kaus að semja frekar við Dortmund.

Dortmund var reiðubúið til að borga 25 milljónir evra fyrir Bellingham, sem samsvara 21 milljón punda. Það eru því allar líkur á því að Dortmund samþykki að greiða 25 milljónir punda fyrir Jobe.
Athugasemdir