Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 15:08
Elvar Geir Magnússon
Heimild: BBC 
Leikmaður Tottenham hirti fyrirsagnirnar í Þýskalandi
Luka Vuskovic naut þess í botn að skora gegn Bayern.
Luka Vuskovic naut þess í botn að skora gegn Bayern.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Hann kom til Spurs síðasta sumar en var lánaður beint til Hamborgar.
Hann kom til Spurs síðasta sumar en var lánaður beint til Hamborgar.
Mynd: Tottenham
Hinn 18 ára gamli Luka Vuskovic fagnaði að hætti hússins þegar hann jafnaði fyrir Hamburg gegn Bayern München í 2-2 í þýsku Bundesligunni síðasta laugardag.

Þessi króatíski varnarmaður skoraði síðasta mark leiksins með skalla og Hamburg náði í stig af Bayern í fyrsta sinn síðan 2014.

Vuskovic er á láni frá Tottenham og fær mikið lof fyrir frammistöðu sína í leiknum; auk þess að skora þótti hann sýna þroskaða frammistöðu í baráttu við Harry Kane, einn besta sóknarmann heims.

Vuskovic hefur átt virkilega gott tímabil og geislaði af sjálfstrausti þegar hann fagnaði markinu gegn Bayern með því að standa ofan á auglýsingaskilti og soga í sig fagnaðarlæti stuðningsmanna.

Spilar eins og reynslubolti
„Þetta snýst ekki bara um að vinna skallabolta, tæklingar eða skora mörk; hann er einstaklingur sem getur skipulagt vörnina. Það er eitthvað sem er sjaldgæft," sagði Lothar Matthäus, Bayern goðsögn, við Sky Sports í Þýskalandi.

„Hann er 18 ára en spilar eins og leikmaður sem hefur spilað á þremur heimsmeistaramótum og unnið Meistaradeildina tvisvar."

Vuskovic kemur úr mikilli fótboltafjölskyldu en faðir hans, afi og langafi voru allir varnarmenn hjá Hajduk Split. Hann sjálfur kom úr unglingastarfi félagsins og vakti athygli Tottenham 16 ára gamall. Enska félagið keypti hann síðasta sumar og lánaði beint til Þýskalands.

Skallinn hans gegn Bayern var fjórða mark hans á tímabilinu en samkvæmt Opta hefur enginn í þýsku deildinni unnið fleiri skallaeinvígi á tímabilinu og aðeins einn er með fleiri hreinsanir.

Getur spilað fyrir allra stærstu liðin
Þýskir fjölmiðlar segja að Bayern München hafi mikinn áhuga á Vuskovic en króatíska stjarnan Ivan Rakitic telur að félagið þurfi að hafa hraðar hendur.

„Ég hlakka hreinlega til að sjá hvort Tottenham geti haldið honum eftir sumarið því að mínu mati er hann þegar tilbúinn í að fara í eitthvað af allra stærstu liðum Evrópu," segir Rakitic sem hefur tröllatrú á Vuskovic og telur að hann yrði mikill fengur fyrir Bæjara.

Sjálfur hefur Vuskovic talað um að það sé draumur sinn að spila við hlið bróður síns, Mario Vuskovic, með Hamborgarliðinu. Mario hefur verið hjá félaginu síðan 2021 en var dæmdur í langt bann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi 2022. Banninu lýkur í nóvember á þessu ári.


Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - konur
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern W 15 14 1 0 57 4 +53 43
2 Wolfsburg W 15 12 1 2 51 21 +30 37
3 Bayer W 16 9 1 6 27 25 +2 28
4 Werder W 16 8 4 4 23 21 +2 28
5 Hoffenheim W 15 8 2 5 29 19 +10 26
6 Freiburg W 16 8 2 6 30 23 +7 26
7 Eintracht Frankfurt W 15 7 3 5 36 30 +6 24
8 Koln W 16 7 3 6 21 20 +1 24
9 Union Berlin W 16 5 3 8 24 32 -8 18
10 Nurnberg W 16 4 4 8 20 40 -20 16
11 RB Leipzig W 16 4 2 10 22 34 -12 14
12 Hamburger W 16 2 4 10 15 41 -26 10
13 Essen W 16 2 3 11 13 38 -25 9
14 Carl Zeiss Jena W 14 1 3 10 12 32 -20 6
Athugasemdir
banner
banner
banner