Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 20:54
Brynjar Ingi Erluson
Sverrir tapaði gegn gömlu félögunum - Levadiakos getur skráð sig á spjöld sögunnar
Sverrir Ingi í leik með Panathinaikos
Sverrir Ingi í leik með Panathinaikos
Mynd: EPA
Landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason var í vörn Panathinaikos sem tapaði fyrir PAOK, 1-0, í fyrri undanúrslitaleik liðanna í gríska bikarnum í kvöld.

Sverrir er orðinn fastamaður í liði Rafael Benítez eftir að hafa verið inn og út úr liðinu síðustu mánuði.

Miðvörðurinn lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Panathinaikos gegn sínum gömlu félögum i PAOK, en eina mark leiksins gerði gríski sóknarmaðurinn Georgio Giakoumakis úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur eftir að Davide Calabria, fyrrum fyrirliði AC Milan, gerðist brotlegur í teignum.

Leikurinn fór fram á heimavelli Panathinaikos í Aþenu en seinni leikurinn á erfiðum útivelli PAOK í Thessaloniki í næstu viku.

Hörður Björgvin Magnússon var ekki með Levadiakos sem gerði 1-1 jafntefli við OFI Crete á Krít. Hann er að glíma við vírus, en ætti að vera orðinn klár fyrir síðari leikinn sem er spilaður í Livadeia í næstu viku.

Levadiakos á möguleika á að komast í bikarúrslit í fyrsta sinn í sögu félagsins takist því að vinna OFI.
Athugasemdir
banner
banner