Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   fim 05. febrúar 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Kayla framlengir við Þrótt - „Ætlum að berjast um titilinn"
Kvenaboltinn
Kayla Rollins í leik með Þrótti
Kayla Rollins í leik með Þrótti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bandaríski sóknarmaðurinn Kayla Rollins hefur framlengt samning sinn við Þrótt R. til næstu tveggja ára en þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum í gær.

Rollins gekk í raðir Þróttara um mitt síðasta sumar eftir að hafa raðað inn mörkum í bandaríska háskólaboltanum.

Hún skoraði fimm mörk í Bestu deildinni og var sérstaklega öflug eftir tvískiptingu deildarinnar þar sem hún gerði fjögur mörk í fimm leikjum.

Þróttarar settu nýtt félagsmet með því að hafna í 3. sæti Bestu deildarinnar með 48 stig og átti Rollins stóran þátt í því.

Það er nú ljóst að hún mun leika áfram með Þrótturum næstu tvö árin.

„Ég er hæstánægð með að vera komin aftur hingað og hjálpa liðinu að halda áfram að vaxa frá síðasta tímabili og berjast um titilinn á komandi leiktíð. Ég er ánægð að vera komin aftur í þetta samfélag sem er eins og ein stór fjölskylda, þannig ég bara get ekki beðið eftir að koma til móts við hópinn. Ég er ánægð að vera komin aftur í Laugardalinn," sagði Rollins á Instagram-síðu Þróttar.


Athugasemdir
banner
banner
banner