Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Cucurella og Adama hlógu saman eftir atvikið
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Chelsea tók á móti West Ham United í Lundúnaslag um síðustu helgi og náðu gestirnir óvænt tveggja marka forystu í fyrri hálfleik, svo staðan var 0-2 í leikhlé.

Heimamenn gerðu sér lítið fyrir og komu til baka með þremur mörkum í síðari hálfleik til að tryggja sér þrjú stig. Það hitnaði þó heldur betur í kolunum undir lokin þegar Adama Traoré kastaði Marc Cucurella í jörðina.

Átök brutust út þar sem Jean-Clair Todibo fékk að líta rautt spjald fyrir að taka Joao Pedro hálstaki, en Traoré fékk gult.

   31.01.2026 20:05
Sjáðu lætin í Lundúnum: Tók Joao Pedro hálstaki og sá rautt


„Joao Pedro bjargaði lífi mínu," sagði Cucurella hlæjandi í myndbandsviðtali við 3Cat á Spáni. „Í hans sporum þá hefði ég hlaupið afturábak."

Þarna var Cucurella að ræða um atvikið þegar Traoré kastaði honum í grasið og Joao Pedro kom til varnar, sem endaði með að Todibo greip um hálsinn á Brasilíumanninn og var sendur í sturtu.

„Það var lítið eftir og við vorum að berjast um boltann. Þegar ég var að standa aftur upp tók ég eftir því að við vorum mjög nálægt hvor öðrum svo ég ákvað að setja hausinn aðeins út til að sjá hvort ég gæti skapað smá vesen. Hann brást við með að grípa utan um mig og kasta mér í jörðina og þá brutust út átök.

„Þetta eru hlutir sem gerast á fótboltavellinum og það eru engin vandamál frá minni hlið. Ég er samt ekki alveg viss hvort ég sé að fara að heilsa honum ef ég mæti honum úti á götu eftir þetta."


Fréttamaður 3Cat var óvænt með Adama Traoré tilbúinn á línunni og var honum bætt við myndsímtalið. Það var mikið hlegið og tók Traoré undir orð kollega síns.

„Þetta var bara í hita leiksins, ekkert meira en það. Ég veit að Marc er góður strákur og að þetta er ekkert persónulegt. Þetta eru hlutir sem gerast á vellinum."

Cucurella fékk svo aftur orðið og nýtti það til að halda áfram með grínið. „Ég er rólegur núna bara útaf því að við erum að gera þetta í gegnum símann."

Til gamans má geta að bæði Adama Traoré og Marc Cucurella komu upp í gegnum La Masia akademíu Barcelona.

   04.02.2026 18:45
Enska sambandið kærir Chelsea og West Ham



Athugasemdir
banner
banner