Það var mikið svekkelsi fyrir Jean-Philippe Mateta, sóknarmann Crystal Palace, þegar fyrirhuguð sala hans til AC Milan urðu að engu á gluggadeginum. Mateta hefur verið að spila í gegnum hnémeiðsli og féll á tvöfaldri læknisskoðun í Mílanó.
Mateta verður því áfram hjá Palace út tímabilið en stjóri liðsins, Oliver Glasner, tjáði sig um málið á fréttamannafundi í dag.
Mateta verður því áfram hjá Palace út tímabilið en stjóri liðsins, Oliver Glasner, tjáði sig um málið á fréttamannafundi í dag.
Draumur hans er að spila á HM
„Fyrst af öllu þurfum við að meðhöndla hnéð á honum. Mikilvægast er alltaf velferð leikmannsins. Við höfum verið að álagsstýra honum í leikjum og á æfingum. Í hreinskilni þá vissum við að mögulega kæmist hann ekki í gegnum læknisskoðun. Við vissum það og hann vissi það," segir Glasner.
„Við höfum fengið mismunandi álit frá mismunandi læknum. Við munum nú skoða hann enn betur, hitta annan lækni á mánudag og svo setjumst við niður og tökum ákvörðun."
„Það eru tvær leiðir sem hægt er að fara; það er hægt að halda áfram að álagsstýra honum þar til eftir HM. Það er draumur hans að spila með Frakklandi á HM. Hin leiðin er að hann fari í aðgerð. Við vitum ekki hversu lengi hann yrði frá; kannski tveir til þrír mánuðir, kannski sex til níu. Það eru mismunandi skoðanir en þetta snýst um að gera það rétta og við tökum ákvörðun í næstu viku."
Mín ósk hefði verið að JP hefði fengið það sem hann vildi
Crystal Palace keypti Jörgen Strand Larsen frá Wolves á gluggadeginum en honum var ætlað að fylla skarð Mateta. Þá virtist félagið vera að fá Dwight McNeil, leikmann Everton, en ekkert varð af því.
„Ég hef lært að sætta mig við hvernig staðan sé. Mín ósk, og allra hjá félaginu, var sú að JP fengi það sem hann vildi og við myndum fá Jörgen og McNeil til okkar. Við vildum líka fá varnarmann í stað Marc Guehi og félagið reyndi allt sem það gat en félög voru ekki tilbúin að selja á gluggadeginum," segir Glasner.
Strand Larsen frábær karakter
Á fréttamannafundinum tjáði Glasner sig um Strand Larsen.
„Hann er með svipaða eiginlega og JP. Við vildum stóra og líkamlega öfluga 'níu', Jörgen er með frábært hugarfar og frábæran karakter. Hann hefur sýnt á æfingum í vikunni hvað hann getur gert í teignum," segir Glasner.
„Við treystum á hann. Við skoðum alltaf getu leikmanna og líka karakterana og Jörgen sýndi bæði. Þess vegna lögðum við mikið á okkur til að fá hann. Hann hefur sýnt hvað hann hefur á æfingasvæðinu. Hann er hungraður í að skora mörk og hefur skorað nokkur falleg mörk á æfingum."
Mateta spilar ekki næstu leiki
Palace, sem situr í fimmtánda sæti deildarinnar, fær Brighton, sem er í þrettánda sæti, í heimsókn á sunnudag.
„Mér finnst eins og við höfum fengið nokkra nýja menn! Daichi Kamada er kominn aftur og æfði alla vikuna, hann er klár í slaginn. Borna Sosa er kominn aftur og Adam Wharton er kominn úr banni. Justin Devenny er nálægt endurkomu en sunnudagurinn kemur aðeins of snemma fyrir hann líklega," segir Glasner.
Hann staðfesti einnig að Mateta myndi ekki spila næstu leiki sem eru gegn Brighton og Burnley. Enn væri langt í að Cheick Doucoure væri klár og þá væri Eddie Nketiah enn á meiðslalistanum.
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 24 | 16 | 5 | 3 | 46 | 17 | +29 | 53 |
| 2 | Man City | 24 | 14 | 5 | 5 | 49 | 23 | +26 | 47 |
| 3 | Aston Villa | 24 | 14 | 4 | 6 | 35 | 26 | +9 | 46 |
| 4 | Man Utd | 24 | 11 | 8 | 5 | 44 | 36 | +8 | 41 |
| 5 | Chelsea | 24 | 11 | 7 | 6 | 42 | 27 | +15 | 40 |
| 6 | Liverpool | 24 | 11 | 6 | 7 | 39 | 33 | +6 | 39 |
| 7 | Brentford | 24 | 11 | 3 | 10 | 36 | 32 | +4 | 36 |
| 8 | Sunderland | 24 | 9 | 9 | 6 | 27 | 26 | +1 | 36 |
| 9 | Fulham | 24 | 10 | 4 | 10 | 34 | 35 | -1 | 34 |
| 10 | Everton | 24 | 9 | 7 | 8 | 26 | 27 | -1 | 34 |
| 11 | Newcastle | 24 | 9 | 6 | 9 | 33 | 33 | 0 | 33 |
| 12 | Bournemouth | 24 | 8 | 9 | 7 | 40 | 43 | -3 | 33 |
| 13 | Brighton | 24 | 7 | 10 | 7 | 34 | 32 | +2 | 31 |
| 14 | Tottenham | 24 | 7 | 8 | 9 | 35 | 33 | +2 | 29 |
| 15 | Crystal Palace | 24 | 7 | 8 | 9 | 25 | 29 | -4 | 29 |
| 16 | Leeds | 24 | 6 | 8 | 10 | 31 | 42 | -11 | 26 |
| 17 | Nott. Forest | 24 | 7 | 5 | 12 | 24 | 35 | -11 | 26 |
| 18 | West Ham | 24 | 5 | 5 | 14 | 29 | 48 | -19 | 20 |
| 19 | Burnley | 24 | 3 | 6 | 15 | 25 | 47 | -22 | 15 |
| 20 | Wolves | 24 | 1 | 5 | 18 | 15 | 45 | -30 | 8 |
Athugasemdir


